Nýjar áhugaverðar kvikmyndir frá öllum heimshornum, kvikmyndahátíðir og hverskyns kvikmyndatengdir viðburðir. Café/bar.
Heimasíða: www.bioparadis.is
Bíó Paradís sýnir nýjar áhugaverðar kvikmyndir frá öllum heimshornum auk hverskyns eldri mynda erlendra sem innlendra, hýsir kvikmyndahátíðir og stendur fyrir hverskyns kvikmyndatengdum viðburðum. Þá eru reglulegar skólasýningar í húsinu þar sem markmiðið er að efla þekkingu og menntun á þessari mikilvægu listgrein.
Í Bíó Paradís er einnig að finna veitingahús og verslun með mynddiska og annan kvikmyndatengdan varning.
Bíó Paradís er því nokkurskonar hjarta kvikmyndamenningar í landinu; áfangastaður allra þeirra sem vilja eiga góðar stundir í afslöppuðu umhverfi sem angar af andrúmslofti kvikmyndanna.
This site collects and organizes the list of fun places around the world. You can find what interests you in just a few clicks and for free.
This site survives only with a few non-invasive banners, so we are asking you to disable any ADblock software. If you can alternatively continue find your favourites events somewhere else or LIKE this page
Leave a comment