Solon Bistro býður upp á smárétti, salöt, hamborgara, samlokur og kjötrétti auk þess sem fiskur dagsins er ávallt nýveiddur úr sjó.
Sólon Bistro hefur skapað sér orð sem einn vinsælasti veitingastaður landsins og er að finna í hjarta höfuðborgarinnar, efst í Bankastræti rétt fyrir neðan Skólavörðustíginn.
Húsið sem geymir Solon Bistro hefur verið haldið í upphaflegu útliti sem gefur veitingastaðnum mjög sterkan, fallegan og rómantískan blæ. Neðri hæðin tekur 80 manns í sitjandi borðhald og efri hæðin getur tekið 130 manns í standandi veislu ...
Sportbarinn Ölver í Glæsibæ er elsta krá landsins og hefur verið starfrækt síðan 1984. Staðurinn hefur alls 5 mismunandi sali sem henta til ýmissa viðburða. Alls eru 5 breiðtjöld og 20 sjónvörp og hægt er að sýna allt að 9 mismunandi íþróttaviðburði þar af 5 með hljóði.
Við höfum opnað nýtt og endurbætt kaffihús og verslun á 3. hæð í Kringlunni, við Stjörnutorg. Kaffihúsið í Kringlunni er stærsta kaffihús Te & Kaffi en það rúmar ríflega 50 manns í sæti. Á kaffihúsinu getur þú fengið þér helstu kaffi og tedrykki ásamt samlokum, beyglum, salati, muffins og öðru góðgæti. Í verslunni færðu hágæða kaffi og tevörur frá til að mynda Hario, Chemex og Beehouse ásamt landins mesta úrvali af tei.